Refund policy

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Roasted Reykjavik ber enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Roasted Reykjavik til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með  DROPP og hægt er að velja um að fá sent á póstbox eða heimkeyrslu. Verðið er frá 890 kr fyrir sendingu á póstbox/dropp og frá 1.390 kr fyrir sendingu í heimkeyrslu.

Að skipta og skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að vörur séu ónotaðar og þeim skilað í upprunalegu ástandi. Fresturinn miðast við að vara sé komin aftur í hendur seljanda innan 14 daga. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að seljandi hefur móttekið vöruna. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Einnig getur viðskiptavinur fengið endurgreiðslu ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy

All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.(Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.

Hafa samband

roastedrvk@gmail.com

kt: 191381-4039